Um okkur
VETAQ er nýtt og metnaðarfullt fyrirtæki á sviði heilbrigðis- og velferðarmála í lagareldi. Fyrirtækið samanstendur af reyndum dýralæknum með fjölbreyttan bakgrunn, bæði frá norsku og íslensku fiskeldi, og býður íslensku fiskeldi aukna hæfni, þekkingu og þjónustu á sviði heilbrigðis- og velferðarmála.
VETAQ sér mikilvægi þess að fella inn velferðar- og heilbrigðisstjórnun sem virkan hluta í stjórn eldisfyrirtækja og vill í þessu samhengi vinna náið með yfirstjórn jafnt sem stjórnendum og starfsfólki eldisstöðva. Þjálfun og þekkingarmiðlun hvað varðar heilbrigði, velferð og smitvarnir í fiskeldi er mikilvæg hvatning fyrir stjórnendur og starfsfólk eldisstöðva en spilar einnig lykilhlutverk í líffræðilegri hagræðingu og bestun á eldisskilyrðum.
Við erum til húsa á Eyrartröð í Hafnarfirði. Þar höfum við fundaraðstöðu fyrir 6-10 stk með stafrænum fundarbúnaði sem gerir okkur kleift að halda námskeið hjá okkur bæði í eigin persónu og á netinu. Við bjóðum uppá margvísleg námskeið í því sem tengist heilbrigði, velferð, hreinlæti, smitvörnum og lyfjanotkun í lagareldi.
Við erum með rannsóknaraðstöðu sem gerir okkur kleift að taka á móti fiski til skoðunar, krufningar og sýnatöku. Hér höfum við aðstöðu til smásjárskoðunar sem og einfaldrar bakteríugreiningar. Rannsóknaraðstaðan okkar er í sífelldri þróun og er markmiðið að sníða þessa aðstöðu að þörfum viðskiptavina okkar. Við höfum einnig tekið á móti starfsfólki eldisstöðva í stutt námskeið í smásjárskoðun tálkna- og slímsýna sem nýst getur vel fyrir innra eftirlit á stöðvunum.
Fólkið á bakvið VETAQ
Bernharð Laxdal
Dýralæknir og fisksjúkdómafræðingur
+354 843-0020
benni@vetaq.is
Dan Roger Lid
Framkvæmdastjóri
+354 777-2716
dan@vetaq.is
Kristrún H. Kristþórsdóttir
Dýralæknir
+354 698-2716
kristrun@vetaq.is
Lína Björk Magnúsdóttir
+354 778-8979
lina@vetaq.is
Guðrún H. Guðjónsdóttir
Dýralæknir
+354 844-1401
gudrun@vetaq.is